Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Maxímús Músíkús Prenta
Almennar fréttir
föstudagur, 18 maí 2012 11:43

Gulu- og rauðu hópar fóru í dag með rútu í Hörpu. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listdansskóli Íslands buðu okkur ásamt fleiri skólum að koma og sjá sýninguna Maxímús Músíkús bjargar ballettinum. Sagan um Maxímús fléttaðist saman við fallega tónlist og ballettdans.

Myndir í myndaalbúmi

 
Gulu hópar á vorhátíð í Breiðholtsskóla Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 10 maí 2012 13:57

Elstu börnunum var boðið á vorhátíð í Breiðholtsskóla. Fyrst var farið  í ýmsa leiki inn í íþróttasal ásamt börnunum í fyrsta bekk. Eftir það var boðið uppá hressingu inn í matsal. Í boði voru ávextir, vatn, djús og kex. Að því loknu fórum við öll út að leika í frímínútum. Það var mjög gaman að hitta gamla félaga og systkini.

 

Myndir í myndaalbúmi gula hóps.

 
Myndlistarsýning í Mjódd Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 08 maí 2012 16:10

Í dag opnaði myndlistarsýning leikskólabarna í Bakkahverfi með pomp og pragt í Mjóddinni. Kór elstu barnanna frá öllum leikskólunum í Bakkahverfi sungu nokkur lög og svo var smá söngur. Síðan fengu börnin að gæða sér á skúffuköku og ávaxtasafa áður en þau skoðuðu svo sýninguna sem er glæsileg sem endranær.

Sýningin mun vera uppi í Mjóddinni til 16. maí og því tilvalið að fara og skoða herlegheitin.

Myndir frá opnunni má finna í myndasafninu.

 
Umferðarskóli og kveðjur Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 03 maí 2012 09:46

 Núna fer að líða að því að elstu börnin fara að kveðja og við notuðum tækifæri í útiverunni um daginn að kveðja eina unga dömu.

Einn af vorboðunum er Umferðarskólinn en guli hópur fór yfir í Arnarborg til að fá fræðslu um umferðina og hvernig ber að haga sér þar.

Sjáið fleiri myndir í myndasafninu.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 94

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

Viðburðir


Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fálkaborg, Fálkabakka 9, 109 Reykjavík | Sími: 557-8230 | Póstur | Viðburðir | Fréttir